Framkvæmd rótfyllingar
Rótfylling er framkvæmd til að bjarga tönninni þinni svo hún haldi áfram að nýtast þér frá degi til dags. Inni í tönnunum er vefur sem heitir kvika.  Kvikan samanstendur meðal annars af taugum, æðum og bandvef og nær frá tannkrónu og alveg niður í rótarenda. Rótfylling er framkvæmd þegar kvikan bólgnar eða sýkist meðal annars vegna djúprar tannskemmdar, endurtekinna meðferða á tönninni, lekrar fyllingar eða krónu eða vegna sprungu í tönninni. Einnig getur tannáverki leitt til bólgu eða sýkingar í kviku þó svo ekkert sé sjáanlegt á tönninni, eins og brot eða sprunga. Ef kvikubólga eða -sýking er ekki meðhöndluð getur það valdið verkjum og bólgu.

 

Hvernig?

Rótfylling felur í sér að fjarlægja bólgna eða sýkta kviku úr tönninni þinni, sótthreinsa og víkka rótarganga og fylla upp í þá með sérstöku rótfyllingarefni. Meðferðin fer fram undir smásjá. Yfirleitt er rótfyllingarmeðferðin sársaukalaus eða -lítil sem næst með hjálp nýjustu tækni og deyfilyfja.


Tímalengd

Það getur þurft allt upp í 3 heimsóknir til að ljúka við rótfyllinguna en flestar er hægt að klára í 1-2 heimsóknum. Sumar meðferðir eru flóknari en aðrar og krefjast meiri undirbúnings og lengri meðferðartíma. New Paragraph

Share by: